Þátttaka í Lestrarkeppni grunnskólanna árið 2021 fór langt fram úr væntingum. Í heildina tóku um sex þúsund einstaklingar þátt fyrir 136 skóla og lásu 776 þúsund setningar á vefnum samromur.is. Fyrir keppnina voru um 320 þúsund setningar komnar í gagnasafnið og er því um rúmlega þreföldun í gagnamagni að ræða. Samanlagt hafa safnast 1,1 milljón setningar frá því verkefnið hófst.
Verðlaunaafhending fór fram á Bessastöðum þegar forseti og forsetafrú Íslands veittu þremur skólum skólum verðlaun, en keppt var í ólíkum flokkum eftir fjölda nemenda í 4.-10. bekk.
Smáraskóli sigraði í sínum flokki og las mest allra skóla með 133 þúsund setningar frá 626 þátttakendum. Þess má geta að í lestrarkeppni ársins 2020 söfnuðust í heildina 130 þúsund setningar.
Grenivíkurskóli sigraði í sínum flokki og lásu næst mest allra skóla keppninnar: 129 þúsund setningar sem 420 þátttakendur lásu inn.
Setbergsskóli sigraði í sínum flokki: 27 þúsund setningar sem 314 þátttakendur lásu inn.
Þá voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur en þá var horft til fjölda setninga sem hver skóli las, þvert á stærðarflokka skólann.
Höfðaskóli, sem var í sama flokki og sigurvegarinn Grenivíkurskóli, fékk verðlaun fyrir framúrskarandi árangur: 102 þúsund setningar sem 516 þátttakendur lásu inn.
Gerðaskóli og Myllubakkaskóli fengu einnig verðlaun fyrir framúrskarandi árangur. Í Gerðaskóla lásu 401 þátttakandi 48 þúsund setningar og í Myllubakkaskóla lásu 310 þátttakendur 43 þúsund setningar.
Söfnun raddsýna fer fram á vefsvæðinu samrómur.is, sem Almannarómur og Háskólinn í Reykjavík standa að, og er söfnunin áfram opin. Raddgagnasafnið Samrómur verður notað til þjálfunar máltæknihugbúnaðar fyrir íslensku.
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir-kl-19-00/27717/95bq5r/lestrarkeppni-grunnskolanna