Fóru á fund Apple í Kaliforníu

Sendinefnd skipuð forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni og menningar- og viðskiptaráðherra Lilju Alfreðsdóttur, hélt á fund forsvarsmanna Apple í gær, mánudag. Fundað var með Jason Lundgaard aðalframkvæmdastjóra og Nick Ammann varaforseta alþjóðamálasviðs fyrirtækisins.

Forseti ræddi mikilvægi þess að íslenska verði hluti af þróun tæknilausna svo framtíð tungumálsins sé tryggð í stafrænum heimi. Á fundinum kynnti einnig Lilja Alfreðsdóttir þau umfangsmiklu gagnasöfn sem þegar eru til staðar í samræmi við máltækniáætlun stjórnvalda. Þá greindi Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, frá þeirri miklu vinnu sem lögð hefur verið í þróun máltæknilausna á Íslandi. Lögð var áhersla á sameiginlega hagsmuni í langtímasamstarfi.

Vilja koma íslenskunni að

Tilgangur ferðar nefndarinnar er að sýna forsvarsmönnum tæknirisanna fram á mikilvægi þess að íslensk tunga eigi sinn sess í þróun á nýjustu máltæknilausnum. Auk ofangreindra er sendinefndin skipuð Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Jóni Guðnasyni, forstöðumanni Gervigreindarseturs Háskólans í Reykjavík, Vilhjálmi Þorsteinssyni, stofnanda hugbúnaðarfyrirtækisins Miðeindar, ásamt formanni stjórnar Almannaróms Stefaníu G. Halldórsdóttur og Björgvini Inga Ólafssyni sem er meðlimur stjórnar Almannaróms.

Einnig fundað með Open AI, Amazon og Microsoft

Á morgun, þriðjudag, verður fundað með framkvæmdastjóra gervigreindarfyrirtækisins Open AI.

Á miðvikudag verður flogið frá San Jose til Seattle. Þá um kvöldið opnar forseti Íslands viðburð í Norræna safninu í Seattle þar sem leiddir verða saman fjárfestar og fulltrúar nýsköpunarfyrirtækja í tækniiðnaði. Fimmtudaginn 19. maí flytur forseti svo erindi á norrænni nýsköpunarráðstefnu, Nordic Innovation Summit, sem fram fer í Norræna safninu í Seattle.

Síðar þann dag heldur sendinefndin til höfuðstöðva Amazon og Microsoft þar sem fundað verður með forsvarsmönnum fyrirtækjanna. Á fimmtudagskvöld verður svo flogið til Boston. Þar mun sendinefndin heimsækja tækniháskólann í Massachusetts (MIT) á föstudag og eiga fundi bæði með forsvarsmönnum háskólans og íslenskum starfsmönnum sem stunda þar rannsóknir og kennslu. 

Myndir: Embætti forseta Íslands.