Reddum málinu! Vinnustaðakeppni í söfnun málsýna fer af stað

Reddum málinu! – Gefum íslenskunni nokkrar mínútur og reddum málinu.

Reddum málinu er vinnustaðakeppni þar sem fyrirtæki og stofnanir keppast við að lesa texta í gegnum tölvu eða snjalltæki. Um er að ræða stuttar setningar, á íslensku sem saman mynda gagnagrunn raddsýna sem hægt er að nota til að kenna tækjum og tölvum að skilja íslensku.  Keppnin er samstarfsverkefni Almannaróms, Háskólans í Reykjavík og Símans og fer fram á vefnum reddummalinu.is

Reddum málinu hefst 8. nóvember og lýkur þann 16. nóvember. Markmið keppninnar er að safna sem flestum raddsýnum, þ.e. lesnum setningum, á íslensku. Keppt verður í þremur flokkum, eftir stærð vinnustaða og verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. 

Lið eru skráð hér: reddummalinu.is

Tungumálið og tæknin

Tæknin teygir anga sína inn í alla kima samfélagsins, við erum orðin háð henni við leik og störf. Þróun tallausna í snjalltækjum er hröð og ljóst að tæknin muni snerta á enn fleiri þáttum okkar daglega lífs í náinni framtíð. Við þurfum því að kenna tækjunum okkar að skilja íslensku, til að við getum talað við tækin á íslensku, og þau geti svarað okkur á íslensku. Aðeins þannig tryggjum við framtíð íslenskunnar og sjáum til þess að tungumálið okkar, saga og menning verði hluti af stafrænni framtíð.

Tungumál eru lifandi og breytast í takt við tíðarandann. Íslenskan er allskonar og mestu máli  skiptir að við notum tungumálið. Að tryggja framtíð íslenskunnar er því eitt mikilvægasta samstarfsverkefni þjóðarinnar.

Um Reddum málinu:

Reddum málinu er samstarfsverkefni Almannaróms - Miðstöðvar máltækni, Háskólans í Reykjavík og Símans. Átakið byggir á Samrómi, lausn sem safnar raddsýnunum saman og yfir 18 þúsund einstaklingar hafa nú þegar lagt lið með upplestri á 1,1 milljón yfirförnum setningum.