Ríflega 1,3 milljón raddsýna í Lestrarkeppni grunnskóla 2022

 

Salaskóli sigraði í flokki A, flokki stærri skóla, og lásu 703 keppendur 107.075 setningar.

Smáraskóli bar sigur úr í býtum í flokki B, sem inniheldur skóla af miðstærð, og las jafnframt mest allra í keppninni eða 236.470 setningar en 914 einstaklingar tóku þátt fyrir hönd skólans.

Hörð keppni var í flokki C, flokki smærri skóla, en þar sigraði Höfðaskóli með 153.288 setningar lesnar lesnar af 353 keppendum.

Jafnframt eru veitt þrenn aukaverðlaun fyrir framúrskarandi árangur með tilliti til fjölda setninga sem hver skóli las, þvert á flokka. Sandgerðisskóli náði framúrskarandi árangri en þar lásu 593 einstaklingar 208.535 setningar. Öxarfjarðarskóli og Gerðaskóli fá einnig verðlaun fyrir framúrskarandi árangur. Í Öxarfjarðarskóla lásu 285 keppendur 147.189 setningar og fyrir Gerðaskóla tóku 406 einstaklingar þátt og lásu 89.336 setningar.

 

Gríðarleg spenna myndaðist á lokasprettinum og var síðasti dagur keppninnar sá langstærsti til þessa, en þá lásu keppendur inn 487.936 setningar. 

Alls tóku 118 skólar þátt og lögðu 5.652 manns sínum skóla lið í þessari keppni.

 

Almannarómur og Háskólinn í Reykjavík þakka öllum sem tóku þátt í keppninni og lögðu sitt að mörkum. Vefurinn samrómur.is verður opinn áfram og hvetjum við öll til að halda áfram lestri inn í gagnagrunninn og leggja þannig sitt af mörkum fyrir framtíð íslenskunnar. 

Myndin sem fylgir fréttinni var tekin árið 2020, þegar Salaskóli varð í öðru sæti í Lestrarkeppni grunnskólanna meðal grunnskóla með fleiri en 450 nemendur. Nemendur í 4. bekk tóku við verðlaununum.