Almannarómur efldur og máltækniáætlun 2 hleypt af stað

Menningar- og viðskiptaráðherra skrifaði í gær undir nýjan samning við sjálfseignarstofnunina Almannaróm um að gegna hlutverki miðstöðvar máltækni á Íslandi til ársins 2027. Almannarómur heldur utan um framkvæmd Máltækniáætlunar 2 fyrir hönd ráðuneytisins og vinnur markvisst að því að tryggja að íslensk tunga verði gjaldgeng í öllum samskiptum sem byggja á tölvu- og upplýsingatækni.

Samningurinn er gerður á grundvelli markaðskönnunar sem Ríkiskaup framkvæmdu fyrir ráðuneytið í byrjun mánaðar. Almannarómur var eini aðilinn sem lýsti yfir áhuga á verkefninu og gekk ráðuneytið í kjölfarið til samninga við stofnunina, sem fór einnig fyrir framkvæmd Máltækniáætlunar 1, fyrir hönd ráðuneytisins á árunum 2019-2023.

„Það gleður mig mjög að búið sé að tryggja Almannarómi traustan rekstrargrundvöll til næstu ára svo að öll sú kraftmikla máltæknivinna sem er í gangi er geti haldið ótrauð áfram. Þessi vinna snýst ekki aðeins um að við getum öll notað helstu forrit og tækni á okkar eigin tungumáli, heldur erum við að byggja brú á milli kynslóða. Tungumálið okkar er gersemi sem hefur varðveist í 1000 ár og er nú hluti af þróunarvinnu stærstu tæknirisa heims sem skilar sér í að tækninýjungar verða aðgengilegar fleirum en þeim sem eru færir í ensku og um leið varðveitir tungumálið okkar og eykur orðaforða,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

„Með samningnum tryggjum við áframhaldandi sókn fyrir tungumálið á stafrænum vettvangi. Almannarómur hefur unnið gríðarlega mikilvægt starf fyrir íslensku þjóðina síðustu ár. Þetta hefur birst meðal annars í samstarfi Íslands við OpenAI, um að gera íslenskuna aðgengilega í ChatGPT, sem stofnunin hefur tekið virkan þátt í auk alls þess árangurs sem hefur náðst í íslenskri máltækni,“ segir ráðherra.

Samningurinn er til þriggja ára og fylgir meðal annars eftir viðhald á þeim máltækniinnviðum sem smíðaðir voru undir fyrri máltækniáætlun stjórnvalda og framkvæmd með Máltækniáætlun 2. Þar að auki mun Almannarómur áfram vinna að kynningu á íslenskum máltæknilausnum fyrir almenning og atvinnulífið og stuðla að aukinni notkun hennar.

Gefið í fyrir tungumálið

„Íslensk tunga má ekki gleymast þó að tækninni fleygi fram. Það er mikilsvert hagsmunamál fyrir almenning, stofnanir og fyrirtæki að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltingu, þannig að á íslensku megi áfram alltaf finna svar. Að öðrum kosti förum við á mis við þau tækifæri sem í tækniframförum felast og eigum um leið á hættu að glata móðurmálinu,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður stjórnar Almannaróms.

Með samningnum er sjálfseignarstofnunin ríflega tvíefld, miðað við fyrri samning, til að stuðla að helsta markmiði Máltækniáætlunar 2; að tryggja hagnýtingu íslenskrar máltækni.

„Við tökum þessu stóra verkefni fagnandi. Framfarir á sviði máltækni síðastliðin ár hafa verið undraverðar og undirstrikað svo um munar mikilvægi þess íslenskunni sé haldið á lofti í heimi tækninnar. Tungumálið okkar er smátt og þess vegna gerist þetta ekki að sjálfu sér. Við þurfum að tryggja að íslenskan sé tilbúin fyrir tæknina og að tækni sem talar og skilur íslensku komist í allra hendur sem vilja,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.

Önnur máltækniáætlun Íslands er formlega komin í gagnið með samningnum en á næstu vikum verður stórum verkþáttum í áætluninni komið í framkvæmd. Ráðuneyti og Almannarómur munu semja við framkvæmdaaðila um ný innviðaverkefni fyrir íslenska máltækni fyrir 100 m.kr. á árinu og árlega út árið 2026 auk þess sem nýir innleiðingar- og hagnýtingastyrkir í máltækni verða auglýstir von bráðar með það að markmiði að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að bjóða upp á tæknilega þjónustu sína á íslensku. 60 m.kr. verður varið í slíka styrki á árinu og er gert ráð fyrir sambærilegri upphæð í styrkina út árið 2026.